KKA HANDBÓKIN !

Lög félagsins

LÖG
KKA Akstursíþróttafélags.
A. Nafn, heimili og tilgangur.
1. Félagið heitir KKA Akstursíþróttafélag. Skammstafað KKA
2. Aðsetur þess og varnarþing er á Akureyri
3. Félagið var stofnað 12.10.1995

4. Tilgangur félagsins er að vinna að útbreiðslu og eflingu vélsleða- og vélhjólaíþrótta, stjórnun fjarstýrðra farartækja og fjallareiðhjólasporti og skapa meðlimum þess aðstöðu til að stunda íþrótt sína á ákveðnum lokuðum svæðum og annars staðar eftir því sem yfirvöld og lög leyfa.

5. Markmið félagsins er að ná til sem flestra iðkendra íþrótta sem taldar eru upp í tl. nr. 4 og gefa þeim gott fordæmi um umgengni og verndun landsins.

6. Hver sem er getur gerst fullgildur meðlimur félagsins.

7. Þeir, sem óska eftir inngöngu í félagið en eru ekki sjálfráða, verða að hafa til þess samþykki foreldra sinna eða forráðamanna.

B. Stjórn
1. Málefnum félags stjórna:
A. Aðalfundur
B. Stjórn

2. Reikningsár félagsins er almanaksárið.   Starfsár félagsins er frá okt til okt ár hvert.

C. Aðalfundur

1. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins, en þó með þeim takmörkunum sem um er getið í lögum þess.

2. Aðalfund sitja allir sem greitt hafa félagsgjöld árið áður. Einnig mega sitja aðalfund velunnarar klúbbsins en hafa þeir hvorki málfrelsi né atkvæðarétt.

3. Aðalfundur skal haldinn ár hvert í október mánuði og skal boðaður með a.m.k. 2ja vikna fyrirvara. Fundi skal boða með auglýsingu á áberandi stað. Að jafnaði skal dagskrá fundarins koma þar fram líka.

4. Málefni sem félagar óska að tekin verði fyrir á fundinum, skulu tilkynnt stjórn félags minnst 1 viku fyrir aðalfund.

5. Á fundinum hafa fulltrúar einir atkvæðarétt, en auk þeirra eiga rétt á þingsetu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt: Heiðursfélagar.

6. Aðeins sá, sem er félagi er kjörgengur til nefnda eða stjórnar. Félagi er sá sem greitt hefur félagsgjöld.

7. Hver félagi hefur aðeins 1 atkvæði.

8. Aðalfundur kýs fundarstjóra. Ákvarðanir fundarstjóra skulu bornar undir atkvæði, ef 1/3 hluti fullgildra félagsmanna krefjast þess.

9. Einfaldur meirihluti ræður við atkvæðagreiðslur á aðalfundi, nema ef lög félagsins kveða á um annað. Fundarstjóri ákveður hvernig atkvæðagreiðslum skuli háttað, atkvæðagreiðslur og kosningar skulu þó vera skriflegar, ef 1/3 hluti félagsmanna óska þess.

10.Ákvarðanir aðalfundar skulu færðar í gerðarbók, þar sem ágrip af umræðum eru skráð svo ítarlega, sem fundarstjóri ákveður.

11.Fundarstjóri undirritar gerðarbók.

12.Aðalfundur hefur heimild til að kjósa heiðursmeðlim að tillögu stjórnarinnar en við slíka samþykkt þarf samskonar meirihluta og krafist er til að breyta lögum félagsins.

13.Ekki er leyfilegt að ræða uppástungur um heiðursfélaga á aðalfundi.

C. Aukafundur.

1. Aukaaðalfundur. Stjórnin getur boðað til aukaaðalfundar hvenær sem er og slíkan fund ber að boða þegar a.m.k. helmingur fullgildra félagsmanna sendir stjórninni skrifleg tilmæli þar að lútandi.

2. Þegar slík tilmæli berast, á að halda aðalfund eigi síðar en mánuði eftir að þau hafa borist stjórninni í hendur, ásamt upplýsingum um efni það, sem óskað er eftir að rætt verði.

3. Fundurinn skal boðaður með a.m.k. einnar viku fyrirvara. Fundi skal boða með auglýsingu á áberandi stað. Í auglýsingu skal dagskrá fundar koma fram.

4. Rétt til setu á aukaaðalfundi hafa sömu aðilar og höfðu rétt til setu á aðalfundi.

5. Á aukafundi má ekki gera lagabreytingar og aðeins kjósa bráðabirgðastjórn.

6. Alltaf skal halda aukaaðalfund í janúar um reikninga félagsins.   Eina umfjöllunarefni fundarins skulu vera reikningar þess og fjárhagsleg afkoma og fjárhagsleg skipulagning næsta reikningsárs. 

C. Dagskrá aðalfundar

1. Setning

2. Kjör fundarstjóra og fundarritara.

3. Skýrsla stjórnar og nefnda lagðar fram til umræðu og samþykktar.

4. Endurskoðaðir reikningar síðasta reikningsárs lagðir fram til umræðu og samþykktar.

5. Kosning nefnda.

6. Sjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.

7. Lagabreytingar

8. Umræður um tillögur, sem fram hafa komið.

9. Kosning formanns.

10.Kosning fjögurra stjórnarmanna.
11.Kosning tveggja endurskoðenda.
12.Önnur mál.
13.Fundargerð lesin upp til samþykktar.
14.Fundarslit.
C. Önnur ákvæði um aðalfund.

1. Kosningar skulu gerðar með handauppréttingu og skal fundarstjóri annast talningu.

2. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum, nema um lagabreytingar sé að ræða, en þá þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.

3. Fundur getur með 2/3 atkvæða viðstaddra leyft að taka fyrir mál, sem komið er fram, eftir að dagskrá fundarins var auglýst.

C. Stjórn félags.

1. Stjórn skipa 5 menn: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og 1 meðstjórnandi og skulu þeir sitja í eitt ár í senn.

2. Heimilt er að bjóða fram heila stjórn til kjörs, og greiða atkvæði einu sinni um þá alla.

H. Úrsögn, brottvikning:

1. Þegar meðlimur hefur ekki greitt félagsgjald í eitt ár, getur stjórnin vikið honum úr félaginu með a.m.k. sjö sólahringa fyrirvara, skriflega.

2. Sá, sem vikið hefur verið úr félaginu vegna vanskila, er ekki hlutgengur til þátttöku í félaginu aftur fyrr en hann hefur greitt skuld sína við það.

3. Stjórnin hefur heimild til að víkja manni úr félaginu ef viðkomandi hefur gerst sérlega brotlegur. Ákvörðun stjórnarinnar verður að vera byggð á atkvæðagreiðslu, þar sem a.m.k. 2/3 hlutar stjórnarmanna samþykkja brottvikninguna. Viðkomandi félagsmanni skal þó heimilt áður en stjórnin tekur ákvörðunina, að bera fyrir sig varnir og hann getur gert kröfu til þess, að um brottvikninguna verði fjallað á aðalfundi.

4. Hægt er að víkja manni úr félaginu, ef tillaga þar að lútandi er borin fram af a.m.k. 15 félögum er samþykkt á aðalfundi með 2/3 hluta atkvæða.

5. Þegar ætlun er að fjalla um brottvikningu á aðalfundi á viðkomandi félagsmaður heimtingu á að fá tilkynningu um það, með a.m.k. 3ja sólarhringa fyrirvara, jafnframt því sem hann hefur heimild til að sækja fundinn til að bera vörn fyrir sig. Ákvörðunin um brottvikningu skal tekin fyrir sem sérstakur dagskrárliður.

6. Félagsmaður, sem vikið hefur verið úr félaginu að ákvörðun aðalfundar, er aðeins tækur í félagið aftur, ef aðalfundur gerir samþykkt þar að lútandi, en til þess þarf sama meirihluta og krafist var við brottvikninguna.

Starfssvið stjórnar.

1. Stjórnin skal starfa eftir samþykktum aðalfundar. Stjórnin, sem er fulltrúi félagsins í öllum málum, hefur umsjá með daglegum rekstri félagsins. Ávarðanir hennar sem teknar eru með lögmætum hætti, eru bindandi fyrir félagið, svo og störf hennar í framhaldi af þeim.

2. Í stjórn eru 5 menn, þ.e. formaður/framkvæmdastjóri, nefndarstjóri og Vefstjóri/ritari ásamt tveimur meðstjórnendum, þar af eru 3 kosnir á aðalfundi félagsins hinir tveir eru skipaðir af stjórn félagsins. Formaður og nefndarstjóri skulu kosnir til tveggja ára. En ritari/vefstjóri til eins árs í senn. Stjórnin skipar meðstjórnendur til eins árs í senn.

3. Formaður getur heimilað fjárútlát annars er það bara stjórn félagsins sem hefur vald til slíks. Formaður er í raun framkvæmdastjóri félagsins.

4. Nefndarstjóri sér um að hafa eftirlit með nefndum, um að þær sinni starfi sínu og er tengiliður þeirra við stjórnina.

5. Vefstjóri og ritari sér um að færa fundargerðir og hafa yfirumsjón með heimasíðu félagsins.

6. Meðstjórnendur eru tveir og eru þeir öðrum til fulltingis og hjálpar í stjórnarstörfum. Stjórnin skipar sér sjálf 2 meðstjórnendur.

7. Ef atkvæði eru jöfn innan stjórnarinnar, ræður atkvæði formanns úrslitum.

8. Formaður stjórnar skal boða til félagsfunda og stjórnarfunda.

9. Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum félags og nefnda.

10.Heimilt er að endurkjósa stjórnarmenn.

11.Hætti einhver stjórnarmeðlima á árinu af óviðráðanlegum orsökum, velur stjórnin mann til að taka sæti hans.

12.Ekki er æskilegt að sitjandi stjórn hætti öll í einu. Til að minnka líkurnar á þessu skal kjósa formann á aðalfundi 2005 til tveggja ára, þ.e. til aðalfundar 2007 og þá skal kjósa formann til tveggja ára, en nefndarstjóra í eitt ár til aðalfundar 2006 en þá skal kjósa nefndarstjóra til tveggja ára til aðalfundar 2008 og svo alltaf þaðan í frá til tveggja ára.

C. Embættismenn.

1. Á aðlfundi skal kosinn bókari sem sér um að bóka reikninga félagsins og einn endurskoðandi. Þessir aðilar hafa eftirlit með fjárreiðum félagsins. Þeir skulu leggja fram athugasemdir við aðalfund ef þurfa þykir.

D. Deildir og nefndir:

Félagið skiptist í 4 deildir, motocross-og endurodeild, Snócrossdeild, reiðhjóladeild, og RC-deild. Nefndir félagsins skulu starfa fyrir allar þessar deildir eftir því sem við á. Sérsatkar nefndir skulu vera fyrir hverja deild nema ekki er þörf á motocross og endurornefnd. Þessar nefndir geta safnað sjálfar auglýsingum og haft afmarkaðan fjárhag, þ.e. haft í gegnum aðalstjórn KKA aðganga að fé því sem deildirnar afla sjálfar. Hafa þannig meira fjárræði heldur en aðrar deildir félagsins. Deildirnar gera þó aðalstjórn skil á fjárreiðum sínum svo færa megi það inn í bókhald félagsins.

Á aðalfundi félagsins skulu formenn nefnda kosnir. Formenn nefnda ákveða síðan hverjir sitji í nefndum með þeim og tilkynna stjórn félagsins um það.

Nefndirnar vinna úr hugmyndum og leggja þeir síðan fyrir stjórn félagsins ásamt kostnaðaráætlun. Nefndarformenn hafa heimild til að semja um framkvæmdir og þjónustu en ætíð með fyrirvara um samþykki stjórnar. Stjórnin ákveður endanlega hvað gert er. Engin nefnd getur farið út í framkvæmdir og verk án samþykkis stjórnar, sem þýðir að engin nefnd getur eytt peningum KKA eða tíma félagsmanna nema stjórnin hafi samþykkt það fyrst.

Formaður félagsins getur setið alla nefndarfundi og skal hafa yfirstjórn um störf nefndanna og getur gripið inn í störf þeirra ef nauðsyn krefur.  
 
Þessar nefndir starfa á vegum félagsins:

Öryggisnefnd:
Ákveða reglur um svæðin, braut KKA í Glerárhólum og Leirutjörn og fleira. Leiðbeinandi fyrir almennan hjólamann á svæðinu. Hafa vakandi auga fyrir því að brautin og svæðin séu örugg. Koma félagsnúmerum á hjólin og hafa eftirlit með því að þau séu á hjólunum.

Upplýsa félagsmenn um lög og reglur sem gilda.

Gerir tillögur til stjórnarinnar um breytingar sem þeir vilja gera og kostnaðaráætlanir.

Svæðisnefnd:

Yfirumsjón með KKA svæðinu í Glerárhólum. Tekur ákvörðun um leigu svæðis og leigugjald og innheimtir leigugjaldið. Svæðisnefndin er ein um að geta ráðstafað svæðinu utan stjórnar félagsins. Skipuleggja viðhald og aðgang allan og eftirlit.

Ákveða æfingatíma og almenna opnun. Gjaldtöku (í samráði við stjórn félagsins) og rekstur svæðisins, og innheimtu brautagjalda.

Áætlanir um hvað þarf á svæðið og koma með tillögur og vinna að uppbyggingu svæðisins.

Mótanefnd:
Stinga upp á mótum leggja það fyrir stjórn til samþykktar og kostnaðaráætlun um þau með áætlun um hvernig framkvæmd á að vera. Mótanefnd þarf að hafa tilbúna mótaskrá hvers árs í október.

Unglingaráð:
Skipuleggja unglingastarfið.

Foreldraráð og Fræðsluráð:
Tengsl milli foreldra og félags. Reyna að koma á námskeiðum á svæðinu.

Fá kennara norður, skipuleggja námskeið.

Aganefnd:
Kvartanir og ágreiningur.

Umferðarnefnd:
Vinna að því að fá sátt um leiðir. Fá leyfi til að merkja leiðir og gera það. Gera skilti leiðbeiningar, um umferð og umgengni.

Kanna leiðir ath. hvenær þær má opna og senda tilkynningar um það á heimasíðu eða annað til félagsmanna og annarra.

Ferðanefnd:
Skipuleggja ferðir á vegum félagsins.

RC nefnd:
Sér um það sem snýr að fjarstýrðum farartækjum á vegum félagsins.

Reiðhjólanefnd:
Sér um það sem snýr að fjallareiðhjólum.

Snocrossnefnd.
Innheimtunefnd:

Sér um innheimtu félagsgjalda og gerir tillögur til stjórnar um afskráningu af félagatali.

Húsnefnd:
Laganefnd:
E. Leggja félag niður.

1. Tillögur um að leggja félag niður má aðeins taka fyrir á lögmætum aðalfundi.

2. Til samþykktar þarf minnst 2/3 hluta atkvæða.

3. Ákvæði um að leggja félag niður, skal koma fram í fundarboði.

4. Sé samþykkt að leggja félag niður, skal boða til aukaaðalfundar til að staðfesta niðurstöðuna.

C. Heimasíða.

KKA hefur opna heimasíðu www.kka.is þar sem félagsmenn geta komið á framfæri hugmyndum sínum. Þar skulu tilkynningar birtar um fundi og annað slíkt.

D. Gildistaka þessara laga.

1. Lög þessi eru sett á aðalfundi KKA 12.10.2001 og öðlast þegar gildi.

2. Lögum þessum verður því aðeins breytt að 2/3 hlutar félagsmanna á aðalfundi samþykki þá breytingu.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning