KKA HANDBÓKIN !

Nefndir

Nefndir KKA

kosið í þær 27. nóv. 2011 fyrir næsta starfsár.


Öryggisnefnd:

  • Sigurður Rúnar Sigþórsson, formaður
Nefndin hefur auga með því að æfingasvæði KKA í Glerárhólum sé eins öruggt og hægt er. Formaður nefndarinnar skal vera tilkallaður á svæðið fyrir mót af mótanefndinni til að skoða öryggismál og fara yfir þau með mótanefnd. Nefndin hefur yfirumsjón með öryggismálum félagsins og hefur vald til að grípa inn í öryggis vegna í hvaða starf félagsins sem er.

Svæðisnefnd:

  • Fjalar Úlfarsson,  formaður
  • Guðmundur Hannesson
  • Hafþór Jörundsson
  • Kristófer Finnson
  • Finnur Aðalbjörnsson
  • Knútur Henrysson
  • Guðlaugur Már Halldórsson
  • Elvar Jósteins
  • Björn Ómar Sigurðsson
Svæðisnefndin hefur yfirumsjón með aksturssvæðum KKA.   Gætir þess að eignir skemmist ekki og heldur þeim við,  eignir teljast helstar svæðið og framkvæmdir þar, og eignir sem þar eru geymdar,  og ennfremur jarðýta,  traktor, herfi og vökvunarkerfi. 
Nefndin tekur ákvörðun um leigu svæðis og leigugjald og innheimtir leigugjaldið. Svæðisnefndin er ein um að geta ráðstafað svæðinu utan stjórnar félagsins. Nefndin skipuleggur viðhald og aðgang allan og eftirlit með KKA svæðinu. Nefndin ákveður æfingatíma og almenna opnun svæðisins.Nefndinákveður gjaldtöku (í samráði við stjórn félagsins) og rekstur svæðisins, og sér um innheimtu brautagjalda. Nefndin gerir áætlanir um hvað þarf á svæðið og verkstýrir vinnu á svæðinu í samstarfi við starfsmann KKA.   
Nefndin ákveður vinnudaga í félaginu þar sem félagsmenn hópast á svæðið til verkefna sem nefndin hefur ákveðið í hvert sinn.
Verkefni nefndarinnar skarast við verkefni húsnefndar og því verða nefndirnar að vinna vel saman.

Hús- og eignanefnd:

  • Kristján Ingi Jóhannsson, form.
  • Elvar Jósteinsson
  • Guðmundur Hannesson
  • Sigurður Rúnar Sigþórsson
  • Gunnar Hákonarson
  • Kristján Hermann Tryggvason
  • Pálína Austfjörð
  • Herdís Regína Arnórsdóttir.
  • Aðalsteinn Bergþórsson
  • Aðalverkefni húsnefndar er að hafa yfirumsjón með félagsheimilinu.    Auk þess gætir hún þess með svæðisnefnd að eignir skemmist ekki og heldur þeim við,  auk félagsheimilis er þá verið að tala um allt lausafé,   verkfæri,  skóflur,  vökvunarkerfi,  hljóðkerfi,  vesti,  og aðrar eignir KKA og ennfremur jarðýta,  traktor og herfi.       Þetta hlutverk rækir nefndin í miklu samstarfi við svæðisnefndina.    Hlutverk þessara nefnda skarast,  og verður ekki hjá því komist,  því er nauðsynlegt að mikið samstarf sé á milli nefnda svo ein nefndin haldi ekki að hin sé í verkinu og öfugt og endir verði sá að enginn sinni verkinu.

 

Mótanefnd:

  • Stefán Hansen, formaður.
  • Sigurður Bjarnason
  • Björn Ómar Sigurðsson
  • Kristófer Finnsson
  • Árni Grant
  • Gunnar Hákonarson
  • Finnur Gunnlaugsson
  • Bjarni Hrafn Ásgeirsson
  • Guðlaugur Már Halldórsson
Mótanefnd gerir mótaskrá félagsins og leggur hana fyrir stjórn í október ár hvert. Mótaskrá á að veratilbúinfyrir aðalfund félagsins sem haldinn er að hausti eigi síðar en í október. Mótanefndin leggur mótaskrá fyrir stjórnásamtkostnaðaráætlun og framkvæmda áætlun. Mótanefndin sér um allt mótahald á vegum félagsins. Þegar kemur að hverju móti sér mótanefndin alfarið um skipulag mótsins og framkvæmd.

Unglingaráð:

  • Bjarki Sigurðsson, formaður
  • Hafþór Grant
Fulltrúar úr Unglingaráði mega sitja alla stjórnarfundi félagsins og skulu þeir koma þar á framfæri viðhorfum og hugmyndum yngrifélaga í KKA.

Foreldraráð:

  • Baldvin Birgisson, formaður.
  • Gunnar Hákonarson
  • Vilhelm Þorri Vilhelmsson
Fulltrúar úr Foreldraráði mega sitja alla stjórnarfundi félagsins og skulu þeir koma þar áframfæri viðhorfum og hugmyndum foreldra.

Fræðsluráð:

  • Þorsteinn Hjaltason, formaður. th@ALhf.is
Ráðið kemur á námskeiðum á svæðinu. Fá kennara norður, skipuleggja námskeiðísamráðiviðSvæðisnefndina. Ráðið sér um þjálfun á vegum félagsins ræður þjálfara og ákveður æfingatíma á KKA svæðinu.

Aganefnd:

  • Halla Berglind Arnardóttir, formaður. finnurhf[hjá]simnet.is
Til aganefndar senda menn kvartanir vegna samskipta félagsmanna.

Umferðarnefnd:

  • Helgi Hinrik Schiöth, formaður
  • Benedikt Geir Ármannsson
  • Guðmundur Hannesson og
  • Þorsteinn Hjaltason.
Nefndin vinnur að því að fá leyfi til að fara ákveðnar leiðir um landið, um slóða og stíga. Nefndin vinnur í því að fjölga slíkum leiðum sem félögum standa opnar. KKA merkir og viðheldur þessum leiðum og ákveður umferðarnefndin viðhaldsdaga til slíks og tilkynnir verkefni hvers dags. Nefndin sér um að láta gera skilti á leiðunum og hæla til leiðbeiningar um umferð og umgengni. Nefndin sér um að kanna leiðir og birta tilkynningar á vef félagsins hvaða leiðir eru færir og opnar. Nefndin sér enn fremur um að viðhalda reglum félagsins um umgengni um landið, gera breytingar og tillögur til stjórnar ef ástæða er til.

Ferðanefnd:

  • Vilhelm Þorri Vilhelmsson - formaður.
Skipuleggja ferðir á vegum félagsins. Ferðir á vegum félagsins eru reglulegar. Nefndin ákveður í hvert sinn hver verður leiðangursstjóri. Lýsingar ferðanna liggja fyrir og er ákveðið erfiðleikastig hverrar ferðar til að félagsmenn geti valið sér ferðir við hæfi. Ferðir eru tilkynntar á vef félagsins og skal ævinlega ákveðin fjöldi fyrirfram og hann takmarkaður við það sem ráðlegt er eftir hverri ferð.

RC nefnd:

  • Jón Gísli Óskarsson, gsm. 862 2226, formaður. kka[hjá]icehobby.com
  • Birkir Sigurðsson
  • Geir Ómar Arnarson
Sér um það sem snýr að fjarstýrðum farartækjum á vegum félagsins.

Reiðhjólanefnd:

  • Sigurgeir Halldórsson
  • Alexander Tryggvason
  • Pétur Stefánsson
Sér um það sem snýr að fjallareiðhjólum.

Innheimtunefnd:

  • Þorsteinn Hjaltason
Sér um innheimtu félagsgjalda og gerir tillögur til stjórnar um afskráningu félaga af félagatali vegna vanskila.

Laganefnd:

  • Þorsteinn Hjaltason, formaður. th@ALhf.is
Sér um að gera tillögur um lagabreytingar.

Embættismenn félagsins: 

  • Hrafnhildur Björnsdóttir, bókari félagsins.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning