Flýtilyklar
Mats Nilsson sigrar Novemberkåsan 2006
Mats Nilsson á Yamaha sigraði í fyrrinótt hina eitilhörðu sænsku endúrókeppni "Novemberkåsan" sem haldin hefur verið í
Svíþjóð síðan 1915. Þá var öldin önnur og Royal Enfield heitustu græjurnar og sigraði Gunnar Enderlein fyrstu keppnina sem
þá var haldin í nágrenni Stokkhólms. Þess má geta að klukkan 4:00 í fyrrinótt höfðu sex fyrstu menn skilað
sér í mark en ekki nálægt því allir startað enn.
Staða þriggja efstu manna varð sem hér segir:
1. 67 Mats Nilsson -- SMK Dala Falun -- Yamaha 250 4t
2. 59 Joakim Ljunggren -- Karlskoga Enduro Klubb -- Husaberg FE450E 4t
3. 83 Fritz Andersson -- Göta MS -- KTM 450 EXC 4t
Athugasemdir