Aðalfundur-félagsmót-grill

Aðalfundur verður haldinn kl. 11:00 morguninn 11. október n.k.     Venjuleg aðalfundarstörf lögum skv.  skoðið þau hér á síðunni,   nefndir,  stjórn og fleira ákveðið (kosnar átti ég við).      Þegar þessum störfum er lokið,   er strax blásið til innanfélagsmóts,   þar eru skemmtilegar enduroleiðir farnar og þrautir inn á milli,   pönnukökubakstur,   armbeygjur,  stafsetningarkeppni,  útsaumur,  störukeppni,  magaæfingar og servíettubrot svo einungis fátt eitt sé nefnt.      Að lokinni keppni ákveð ég eins og venjulega hver vinnur,  er reyndar búinn að ákveða það nú þegar (en svo sem ekki alveg víst,  útiloka ekkert, hugsanlegt að einhver borgi betur),   .....    sem sé eftir að ég hef veitt sjálfum mér 1. til 3. verðlaun,  þá verður grill.       Allt í boði félagsins okkar,   engin mótsgjöld eða grillgjöld bara að mæta í fílu eins og venjulega.     Sérstök verðlaun eru veitt fyrir ömurlegustu flöggun dagsins,  leiðinlegasta keppandann,  versta keppnistjóra-nöldrið og mestu truflun við tímatökumenn (hámarks skor ef tekst að truflann það mikið að allar tímatökur eyðileggist). 

Athugasemdir

Svæði

KKA Akstursíþróttafélag

Stapasíða 13c - 603 akureyri
Kt: 420296-2319 - Banki: 566-05-442538 - VSK nr. 91548