Enduró keppnin á Akureyri

Hér fyrir neðan eru upplýsingar fyrir endurokeppnina á Akureyri sem verður haldin 16. júní 2007. Fólk er hvatt til að kynna sér þær vel. Skráning verður svo auglýst strax og hún hefst.

Enduro þolaksturskeppni á Akureyri 16.06.2007 3. & 4. umferð:

Skráning hér !

Framkvæmdastjórn: Mótsnefnd KKA
Keppnisstjóri: Gunnar Hákonarson
Brautarstjóri: Gunnlaugur Gunnlaugsson
Öryggisfulltrúi: Sigurður Sigþórsson
Kynnir: Stefán (gull) Þór Jónsson
Tímavörður: Aron Reynisson / Þorsteinn Hjaltason
Skoðunarmenn: Guðmundur Hannesson, Sigurður Sigþórsson, Finnur Aðalbjörnsson, Árni Grant.
Yfir Race Police:
Finnur Aðalbjörnsson og Vilhelm Þorri Vilhelmsson
Pittstjórar: Ingólfur Jónsson
, Aðalbjörn Tryggvason
Ræsir: Aðalbjörn Tryggvason
Dómnefnd: Gunnar Hákonarson, Ingólfur Jónsson, Stefán Þór Jónsson
Sjúkragæsla: Björgunarsveitin Súlur, sérþjálfaðir menn með viðeigandi búnað.

Endurokeppnin er á Aksturssvæði KKA í Glerárhólum ofan Akureyrar og nærliggjandi svæði sem er í eigu Akureyrarbæjar auk einkaaðila. Með tilvísun í keppnisreglur í enduro má ekki aka keppnisbrautina fyrir keppni (sjá reglur n.o. 6.1.1) og getur orðið til þess að viðkomandi keppandi fái ekki að vera með í þessari keppni. Leyfi landeiganda miðast við afnot af svæði á keppnisdag. Aðeins keppendur og starfsmenn tengdir henni fá að vera á mótorhjólum á keppnissvæðinu

Keppt er eftir Enduro reglum MSÍ og er keppendum bent á að kynna sér þær, Þar sem þessar reglur ná ekki til gilda alþjóðlegar reglur FIM. Keppendum er skylt að fylla út og skila inn við skoðun “þátttökuyfirlýsingu” . Öll hjól skulu vera skráð og ábyrgðartryggð og þarf keppandi að færa á það sönnur í öryggisskoðun.

Framkvæmd keppninnar.
Keppendum ber að mæta á keppnissvæðið eftir tímatöflu og vera mættir í skoðun á réttum tíma. Fyrir hverja byrjaða mínútu sem mætt er of seint í skoðun er er 1 mínúta tekin út sem víti eftir fyrsta hring.

Flokkaskipting:
Flokkaskipting Enduro Íslandsmót 2006 (FIM reglur)

Meistaradeild:
E1 100cc til 125cc 2-Stroke 175cc til 250cc 4-Stroke
E2 175cc til 250cc 2-Stroke 290cc til 450cc 4-Stroke
E3 290cc til 500cc 2-Stroke 475cc til 650cc 4-Stroke

Veittir bikarar fyrir 3 efstu sætin eftir daginn og er skyldumæting fyrir 3 efstu í verðlaunaafhendingu. Einnig eru 3 flokkaverðlaun.

Tvímenningur:
2 ökumenn á 1 eða 2 keppnishjólum með 1 tímatökusendi Hjólastærð 125cc – 650cc

Veitt eru verðlaun fyrir 3 efstu sætin eftir daginn og er skyldumæting fyrir 3 efstu í verðlaunaafhendingu.

B deild:
Opin flokkur / öll hjól / 80cc – 650cc

Veittir verða bikarar fyrir 3 efstu sætin eftir daginn og er skyldumæting fyrir 3 efstu sæti í verðlaunaafhendingu.

Ræsing:

Allar umferðir dagsins verða ræstar með hópstarti "ATH: HLAUPANDI START".

Baldursdeild ekur 2 umferðir á keppnisdag í 45 mínútur. Fyrsti keppandi er flaggaður út sem sigurvegari að 45 mínútum liðnum.
Meistaradeild ekur 2 umferðir á keppnisdag í 90 mínútur. Fyrsti keppandi er flaggaður út sem sigurvegari að 90 mínútum liðnum.
Tvímenningur ekur 2 umferðir á keppnisdag í 89 mínútur. Fyrstu í tvímenning eru flaggaðir út að 89 mínútum liðnum.

Prufuhringur og keppnisleið:
Ekki er ekinn prufuhringur. Keppendum er sterklega bent á að ganga hringinn fyrir keppni. Keppnisleið er mörkuð með stikum, dekkjum, hliðum og borðum. Þar sem aðeins ein stika stendur gildir 5 metra reglan (ekki fjær stiku en 5 metra). Keppandi sem sleppir hliði fær 1 mínútu í refsingu í formi vítis.

Skyldur keppenda / tímataka / úrslit:
Keppendum er skylt að mæta í skoðun á réttum tíma og fara eftir fyrirmælum keppnisstjórnar. Klukka keppnisstjórnar er alltaf rétt. Aðstoðarmenn eru á ábyrgð keppanda og ber þeim að ganga um keppnissvæðið vel og skilja ekki eftir rusl. Keppnislið / aðstoðarmenn sem sýna ekki keppnisstjórn og starfsmönnum keppninnar háttvísi eiga á hættu refsingu sem keppandi tekur út. Gáleysislegur akstur og eða hraðakstur á viðgerðasvæði getur varðað refsingu í formi tímavítis. Keppendur þurfa að verða sér út um tímatökusenda MSÍ. Úrslit úr hverri umferð verða hengd upp á bíl tímavarðar að lokinni umferð, kærufrestur er 30 mínútur eftir að úrslit hafa verið birt og kostar kr. 5.000,- að leggja fram kæru.

Aðgangur að svæði:
Allir aðrir en keppendur greiða aðgangseyri að svæðinu 500kr.

Verðlaunaafhending:
Keppandi sem unnið hefur til verðlauna og mætir ekki á verðlaunaafhendingu missir sæti sitt og næsti keppandi færist upp. Keppendur geta fengið leyfi til að yfirgefa keppnissvæði áður en verðlaunaafhending fer fram hjá keppnisstjóra ef rík ástæða er til. Verðlaunaafhending fer fram á keppnissvæðinu kl: 16:45

Tímatöflur vegna keppninnar.

Mæting og skoðun:

Nr.101- og liðakeppni kl. 09:00

Nr: 1 - 100 kl. 09:15

Fundur með keppendum kl. 09:45

Flokkur:

Röðun á
ráslínu:

Keppni
hefst:

Keppni
líkur:

Aksturs
tími:

Baldursdeild 1

10:00

10:15

11:00

45 mín.

Meistaradeild 1

11:15

11:30

13:00

90 mín.

Tvímenningur 1

11:15

11:31

13:00

89 mín.

Baldursdeild 2

13:15

13:30

14:15

45 mín.

Meistaradeild 2

14:30

14:45

16:15

90 mín.

Tvímenningur 2

14:30

14:46

16:15

89 mín

Verðlaunaafhending kl. 16:45

Akureyri 11.júní 2007

KKA akstursíþróttafélag - mótanefnd.


Athugasemdir

Svæði

KKA Akstursíþróttafélag

Stapasíða 13c - 603 akureyri
Kt: 420296-2319 - Banki: 566-05-442538 - VSK nr. 91548