Meira um Norðurlandamótið í MX

Þó nokkur áhugi er á Norðurlandamótinu í Moto-Cross sem fer fram 27.10. í Uddevalla
í Svíþjóð. Ísland mun geta sent 8 keppendur í 85cc flokk og 8 keppendur í opin flokk.
ATH. það er engin kvennaflokkur eða unglingaflokkur. Aðeins 85cc og

 

---

Fréttatilkynning.
 
Reykjavík 09.10.2007
 
Þó nokkur áhugi er á Norðurlandamótinu í Moto-Cross sem fer fram 27.10. í Uddevalla
í Svíþjóð. Ísland mun geta sent 8 keppendur í 85cc flokk og 8 keppendur í opin flokk.
ATH. það er engin kvennaflokkur eða unglingaflokkur. Aðeins 85cc og "OPINN"
Keppt verður í 2x 20 mín + 2 hringir í 85cc og 2x 25 mín + 2 hringir í "OPNUM"
3 keppendur í hvorum flokk munu telja stig fyrir Íslands hönd í þessu fyrsta Norðurlandamóti
sem fram fer eftir að það lagðist af í nokkur ár.
Ísland hefur fengið númeraseríu frá 41-50 fyrir sína keppendur og er það á ábyrgð keppenda
að mæta með hjólin merkt þeim númerum sem MSÍ úthlutar til þessarar keppni.
Einnig er óskað eftir því að keppendur klæðist eins MX peysum og er verið að vinna að
því hvernig því verður háttað og mun það tilkynnt keppendum þegar endanlegur keppenda
listi verður byrtur.
Þeir keppendur sem ætla að fara eru beðnir að staðfesta umsókni til MSÍ með tölvupósti
til kg@ktm.is fyrir kl: 18:00 á fimmtudaginn 11.10. á umsókn skal koma fram fullt nafn
keppanda, kennitala, keppnisnúmer, keppnishjól og nafn forráðamanns + kennitala.
Ekki verður tekið við umsóknum símleiðis og ekki verður tekið við umsóknum nema að
öll ofangreind gögn komi fram.
Á föstudag 12.10. fyrir kl: 12:00 gefur MSÍ út lista yfir þá ökumenn sem hafa sótt um og
teljast uppfylla skilyrði MSÍ til þáttöku.
 
 
f.h.
MSÍ
Karl Gunnlaugsson
GSM: 893-2098
kg@ktm.is


Athugasemdir

Svæði

KKA Akstursíþróttafélag

Stapasíða 13c - 603 akureyri
Kt: 420296-2319 - Banki: 566-05-442538 - VSK nr. 91548