Flýtilyklar
Sporthótelið í Hlíðarfjalli
11.07.2008
Motokross íbúðagisting opnar á Glerá 2 , rétt neðan við aksturssvæði KKA
Það er komið að því að fyrsta gistiaðstaðan sem höfðar markvisst til
mótorhjólamanna hefur verið opnuð. Gistiheimilið á Glerá 2 er staðsett rétt ofan við Akureyri við veginn upp í Hlíðarfjall
í miðju draumalandi norðanmanna. Húsið er því í aðeins 150 metra fjarlægð frá aksturssvæði KKA og er hægt að
hjóla beint upp á braut frá útidyrunum. Nú er verið að vinna í motokrossbrautinni á fullu og hún ætti að vera tilbúin
á næstu dögum. Örstutt er niður í miðbæ Akureyrar og enn styttra er í hvers kyns afþreyingu. Aðeins 300 metrar eru í motocross,
enduro og reiðhjólabrautir KKA. Frábærar gönguleiðir liggja upp Glerárdalinn, á Hlíðarfjall og Súlur og örstutt leið er
á golfvöll Akureyringa. Á veturna er svo hægt að renna sér alveg upp að dyrum frá toppi Hlíðarfjalls sem gerir brekkuna okkar að einni
lengstu rennslisbrekku á landinu auk þess krossbrautin verður væntanlega nýtt í snjókrossið þegar snjóalög
leyfa. Húsið er ný standsett og eru öll tæki
og aðstaða nýleg og þar eru leigðar út tvær rúmgóðar íbúðir. Á neðri hæðinni er gott pláss fyrir
fjóra fullorðna í herbergi og svefnsófa í stofunni. Auðvelt er að bæta við fleiri rúmum ef menn vilja nýta plássið betur.
Á efri hæðinni komast auðveldlega fyrir 10 manns í þremur mjög rúmgóðum tveggja manna (eða þriggja með aukarúmi) og
tveimur eins manns herbergjum, auk svefnsófa í stofunni. Við
erum í góðu samstarfi við KKA og ef pöntuð er gisting á Glerá getum við boðið upp á dagsmiða í motocrossbrautina á
800 kr. í stað 1.200 kr. Ef margir koma að hjóla þá munar minna. Það eina sem þarf að gera er að láta okkur vita hvað margir
ætla að keyra brautina og hvað marga daga og við útvegum ykkur miðana þegar þið komið. Það eru undirritaður og Guðný kona mín og svo Rúnar og Heiða, stundum kennd við
Nikita,[] sem eigum húsið. Við höfum um árabil stundað
ýmiss konar brettasport (snjó, segl, brim wake...), skíði, fjallahjólreiðar, motocross og hestamennsku svo eitthvað sé upp talið. Við erum
búsett “fyrir sunnan” en okkur finnst gaman að fara norður til Akureyrar bæði að vetri og sumri, vera úti að leika sem mest, skreppa í sund,
grilla og hafa gaman af lífinu. Þegar okkur stóð til boða að eignast hús með tveimur góðum íbúðum við rætur
Hlíðarfjalls, á næstu lóð við motocross brautina, stóðumst við ekki mátið og keyptum það. Þar sem við verðum
hinsvegar ekki nema nokkrar vikur á ári í húsinu fannst okkur tilvalið að leigja það út til fólks sem langar að skreppa norður og
hafa “allt til alls” á meðan á dvöl þeirra þar stendur. Við bjóðum alla hjólamenn velkomna - svo framarlega sem þeir gangi
vel um og skilji við húsið í sama ástandi og þeir koma að því, eða betra! Enn eru nokkrir dagar lausir fram að verslunarmannahelgi (en V-helgin er því miður farin) og um að gera að
festa sér æfingatíma sem fyrst með því að senda póst á keli@intrum.is eða hringja í síma 669 7131.Kveðja,
Hrafnkell formaður VÍK
Athugasemdir