Flýtilyklar
Önnur umferð í N1 Íslandsmótinu í Ískrossi
14.02.2009
Nú er aðeins tæp vika í aðra umferðina í N1 Íslandsmótinu í Ískrossi sem fram fer á Mývatni þann 14.
febrúar næstkomandi. Búið er að opna fyrir skráningu á www.msisport.is og lýkur skráningu á miðnætti á
þriðjudagskvöldið 10/2. Keppnisgjöld eru kr. 5000 í hvern flokk, en eins og áður verður keppt í þremur flokkum, Opinn flokkur þar sem
skrúfur og ísnálar eru leyfilegar, Vetrardekkjaflokkur þar sem eingöngu fjöldaframleidd nagladekk eru leyfð og svo Kvennaflokkur á
fjöldaframleiddum nagladekkjum. Athugið að á árinu 2009 mun MSÍ ekki gera neinar undantekningar varðandi skráninguna, henni lýkur þegar henni
lýkur og ekkert væl eftir það.
Notast verður við AMB tímatökusendana eins og áður, en þá verður hægt að leigja bæði hjá Nítró í Reykjavík og á Akureyri fyrir þá sem ekki eiga senda. Fyrirkomulag keppnanna verður með sama sniði og áður, þ.e.a.s. opnar tímatökur í hverjum flokki þar sem menn og konur vinna sér inn rásstað í samræmi við tíma og svo þrjú hít í hverjum flokki. Stigagjöf er sú sama og í motocrossi 25 stig fyrir fyrsta sæti, 22 fyrir annað, o.s.frv. Notast verður við startljósin eins og áður þar sem almenn ánægja var með þann búnað.
Þess má geta að nú í vikunni var ísinn mældur á vatninu og er hann 56cm !
Hægt er að bóka gistingu á Sel Hótel Mývatn í síma 464-4164 eða senda e-mail á myvatn@myvatn.is
Fyrir frekari upplýsingar má hringja í Stefán 895-4411, Ragga 897-4164 eða Krissa 856-1160.
Kveðja úr Mývatnssveitinni,
Jonni
Heyrst hefur:
...að Steingrímur sé einbeittari en nokkru sinni, kominn á nýtt hjól og hvaðeina !
...að Orri komist ekki í þetta mót !
...að spurning sé hvort einhver stríði Einari núna !
...að Signý sé komin úr gifsinu !
...að spáð sé hörku frosti alla vikuna !
...að frostið eigi ekki að vera mikið um næstu helgi !
...að nú sé mál að drífa sig norður !

Athugasemdir