Flýtilyklar
Reykspól hugsanleg vörn ...
23.03.2017
Ólafur Helgi Kjartansson er sýslumaður á Selfossi og mikill blóðgjafi, gefið 200 sinnum og þykir fréttnæmt í hvert sinn, en hann er auk þess mikill mótorhjólamaður eins og fleiri .... neðangreint flaug úr munni skálds, og kom þá upp í mér lögfræðingurinn og mótorhjólamaðurinn, og velti því fyrir mér hvort þetta gæti gagnast sem vörn í máli manns sem er blóðþegi og ákærður er fyrir slíkan verknað:
Gúmmí við bráðnandi asfaltið brennur
er brynjaður riddari vélfákinn hvetur.
Orrustublóðið um æðar hans rennur.
Ólafur Kjartansson gaf það í vetur.
Athugasemdir