Flýtilyklar
Fjölskylduhátíð Slóðavina
04.09.2008
Ferða og útivistarfélagið Slóðavinir stendur fyrir skemmtilegri fjölskylduhátíð laugardaginn 6.september á svæði
Vélhjólaíþróttafélagsins VÍK í Bolaöldu (gegnt Litlu-Kaffistofunni). Hátíðin hefst kl. 12:00 og endar með grillveislu
í boði félagsins kl. 16:00. Allt áhugafólk um ferðalög og útivist á tví-, fjór- og sexhjólum velkomið.
Svæðið við Bolaöldu hefur upp á margt að bjóða fyrir ökumenn mótorhjóla, byrjendur sem lengra komna, og því ættu
allir að geta fundið brautir eða slóða við sitt hæfi. Einnig verður boðið uppá fjórhjólaferðir á svæðinu fyrir
börn og fullorðna. Nánari upplýsingar um hátíðina má sjá á heimasíðu félagsins.
Athugasemdir