Flýtilyklar
Stórtíðindi KKA hefur fengið viðbótarsvæði
25.11.2008
KKA hefur fengið leyfi frá og með 01. janúar 2009 til að starfrækja æfinga og keppnissvæði skv. reglugerð nr. 507/2007 í
Torfdalnum sem er norðan við svæði félagsins í Glerárhólum. Svæðið afmarkast núna að austan af veginum inn
á svæðið, að sunnan af vegi upp á skotsvæði og að norðan af Hlíðarfjallsveginum. KKA þakkar
bæjarstjórn Akureyrar fyrir traustið. Á svæðinu mun KKA búa til þolaksturleiðir og
reiðhjólabrautir. KKA mun halda Íslandsmót á svæðinu í þolakstri 13. júní 2009. KKA
hefur verið með þolakstursbrautir á neðra svæðinu og mun sú starfssemi færast upp eftir á svæðið í Torfdalnum.
BA fær fljótlega úthlutað neðra svæðinu og mun hefja framkvæmdir við sitt svæði þar á næstunni.
Athugasemdir